Ferðahamsturinn


Þá er enn ein síðan risin úr smiðju Simma... Ástæðan fyrir því að ég setti þessa upp er að það var auðveldara fyrir mig að setja upp nýja síðu en að breyta Hamstrinum.
Ferðahamsturinn er líka eingöngu hugsaður fyrir þessa ferð okkar en Hamsturinn verður áfram okkar "persónulegi" vefur fyrir vini og ættingja.
Ég hafði hugsað mér að hér kæmi einungis fram ferðaupplýsingar og fréttir af okkur sem hver sem er getur fylgst með, sama hvort viðkomandi þekkir okkur eða ekki :) Ókunnugir hafa líklega ekki mikinn áhuga á að lesa um nýtt húsnæði okkar og þannig lagað...
Ég hvet svo bara allt áhugafólk um ferðalög og sérstaklega ferðalög á mótorhjóli að kommenta og fylgjast með :)

Stutt lýsing á síðunni
Hér til hliðar (á forsíðu) sjáið þið Twitter hornið en twitter er þjónusta sem gerir manni kleift að setja inn á netið stutt skilaboð t.d. í gegnum síma. Þannig getum við látið vita hvar við erum, hvar sem er án þess að þurfa að skrifa heila frétt. Við getum líka sett inn mynd með skilaboðunum og birtist hún sem linkur í textanum.

Þar sem við komumst í tölvu munum við svo skrifa lengri fréttir undir "Blogg" öðru hvoru og vonandi með myndum og tilheyrandi.

Fyrir neðan Twitter boxið ætti svo að vera hægt að sjá staðsetninguna okkar á korti öðru hvoru. Ég er með GPS í símanum svo öðru hvoru mun ég kveikja á því og uppfæra staðsetninguna okkar. Ástæðan fyrir því að ég hef þetta ekki alltaf í gangi er að þá mundi batteríið í símanum bara endast í svona 3-4 tíma :)
Undir "Ferðin" í aðalvalmyndinni er svo hægt að sjá leiðina sem við höfum planað og stærra "live" kort fyrir neðan.

Þessari síðu var hent upp á stuttum tíma svo ég vona að allt virki rétt :)

 


Ísland!


Þá erum við komin á gamla góða Ísland. Þessi fyrsti hluti ferðarinnar hefur gengið eins og í sögu með marga kílómetra að baki.


Comments(2) 21/07/2009

Stalst i tolvu...


Rett stalst i tolvu herna i turistabud i Torshavn. Sigrun er ad skoda eitthva lopadot a medan.
Thad blæs adeins a okkur i dag, ætludum ad keyra meira i dag en hættum bara vid a midri leid.


Comments(2) 2009-07-14